Ljósbláar boxer nærbuxur með dökkbláu mittisbandi og ljósbláu lógói.
Léttasta Mesh efni í heimi. Hinar fullkomnu keppnis nærbuxur.
Örlítið þrengra snið en venjulegar Performance nærbuxur.
Léttustu nærbuxurnar okkar, örtrefja Mesh efni með teygju í 4 áttir, vegur um 135 grömm á hvern fermetra.
Sérlega góð rakastýring og yfirburða öndun. Efnið er laust við nanóagnir, Polygiene og önnur efni sem oft eru bætt í.
Performance-línan hentar öllum íþróttum og æfingum. Efnið er mjúkt, létt og þolir erfiðustu átök. Rakinn flyst hratt frá húðinni og efnið þornar á methraða, svo þú haldist þurr og ferskur.
Við viljum benda á að síddin Long er vinsælli heldur en Regular, Regular hentar vel fyrir þá sem vilja hafa nærbuxurnar aðeins styttri en venjulega nærbuxur.
Sjá leiðbeiningar
Eiginleikar
-
Sérhannaðar fyrir íþróttir og virka hreyfingu
-
PackageFront® tækni sem heldur öllu á sínum stað
-
40 mm mjúkt mittisband úr örtrefjuðum pólýester
-
Þorna hratt og er einstaklega slitsterkar
-
84% pólýester, 16% Lycra®
Loftslagshlutlausar
Frí póstsending ef pantað er fyrir 6.000 eða meira
Lesa meira um Comfyballs
PackageFront® -- er lykillinn að einstökum þægindum - heldur búnaðinum þínum á réttum stað og lyftir frá innanverðum lærum. Kemur í veg fyrir óþarfa núning og veitir aukin þægindi.
Speedcut -- Allar Comfyballs nærbuxur eru frekar lágar í mittið og örlítið lægri að framan en að aftan, gert fyrir hámarks þægindi og hreyfifrelsi.
Ofurmjúk efni -- Aðeins er notað hágæða efni í framleiðslu á Comfyballs, extra mjúkt með Flat-Lock saumum og hámarks öndun.
Þægilegt mittisband -- Ofurmjúk og heldur sér á sínum stað
Umhverfisvæn framleiðsla
Allar Comfyballs nærbuxur eru Oeko-Tex vottaðar, sem tryggir að engin skaðleg efni séu notuð í framleiðslunni.
Að auki eru allar Comfyballs nærbuxur kolefnishlutlausar í samstarfi við ClimatePartner GmbH.
Við höfum reiknað út alla kolefnislosun sem verður til frá upphafi framleiðsluferlisins og þar til varan berst til viðskiptavinarins. Þessa losun jöfnum við síðan út með þátttöku í tveimur umhverfisverkefnum sem miða að kolefnisjöfnun.
