Hvernig þetta byrjaði
Comfyballs® eru nærbuxur hannaðar í Noregi og handsaumaðar í Tyrklandi. Hönnunin hófst snemma árið 2012 í Osló og var drifið áfram af skorti á virkni og nýsköpun í nærfötum fyrir karla. Engar boxer nærbuxur á markaðinum veittu nægan stuðning, sérstaklega ekki við íþróttaiðkun. Erfitt var í fyrstu að finna lausnir sem myndu virka fyrir fjöldaframleiðslu. Eftir ótal mistök og fjölda frumgerða náðist loksins markmiðið, hinar fullkomnu nærbuxur.
Hvað gerir Comfyballs svona þægilegar?
Að framan er Packagefront™ sem er hannað til að halda búnaðinum á sínum stað, með því að lyfta honum frá innanverðum lærunum og koma í veg fyrir óþarfa hita sem myndast í kringum punginn. Þær eru saumaðar með Flat-Lock saum sem er töluvert fyrirferðarminni er venjulegur saumur og þú finnur ekki fyrir.
Bómullartrefjarnar eru greiddar í gegn áður en þær eru spunnar í þráð, þannig að stuttu trefjarnar og önnur óhreinindi eru fjarlægð, þetta gerir efnið einstaklega mjúkt en eykur jafnframt endingu þess. Þær eru lægri að framan fyrir aukið hreyfifrelsi.
Mikill metnaður hefur verið lagður í gerð Comfyballs, bjóða hágæða vöru á sanngjörnu verði.
Okkar gildi
Allar Comfyballs vörur eru saumaðar í Tyrklandi við framúrskarandi vinnuaðstæður og gott gæðaeftirlit.
Allar vörur eru 100% Oeko-Tex vottaðar. Staðallinn tryggir að vörurnar og framleiðslan sé laus við efni sem geta verið skaðleg