Skilmálar

Netverslunin Comfyballs.is er rekin af Daría ehf kt.630997 2919 VSK-númer 56039

Hægt er að greiða fyrir vörur með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu Saltpay, millifæra, Netgíró og Aur.

Allar pantanir innanlands eru sendar með Dropp.is

Við tökum ekki ábyrgð á viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Dropp senda pöntuna til baka og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini. Einnig eru viðskiptavinir hvattir til að hafa nöfn og heimilsföng eins ítarleg og kostur er á þegar pantað er.

Hafi pöntun þín ekki borist innan viku frá greiðslu er bent á að hafa samband við okkur á netfangið comfyballs@comfyballs.is

Afhending vöru:

Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs ef pöntun er gerð fyrir klukkan 15:00, annars strax morguninn eftir. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Dropp.is gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp.is um afhendingu vörunnar. Daría ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Daría ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingarkostnaður:

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram.

Að skipta og skila vöru:

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjanes.

Daría ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.