Um okkur
Comfyballs.is er verslun sem býður upp á þægilegan nærfatnað fyrir karla og konur - Comfyballs, líklega þægilegustu nærbuxur í heimi. Fríar sendingar um allt land af pöntunum yfir 8.000 kr og verslun í Firðinum Hafnarfirði þar sem hægt er að skoða og versla.
Comfyballs vörumerkið
Comfyballs eru hannaðar í Noregi og saumaðar í Tyrklandi við framúrskarandi vinnuaðstæður. Hönnunin hófst í Osló árið 2012 út frá einfaldri hugmynd: engar boxer-nærbuxur á markaðnum veittu nægan stuðning, sérstaklega ekki við íþróttir. Eftir fjölda frumgerða varð niðurstaðan einkaleyfða PackageFront™ hönnunin, sérstakt rými að framan sem heldur öllu á réttum stað, lyftir frá innanverðum lærum og kemur í veg fyrir núning og óþarfa hita.
Allar Comfyballs vörur eru 100% Oeko-Tex vottaðar, sem tryggir að vörurnar og framleiðslan séu laus við skaðleg efni.
Comfyballs á Íslandi
Comfyballs hafa verið fáanlegar á Íslandi frá árinu 2024. Rekstraraðili Comfyballs.is er Daría ehf (kt. 630997-2919), sem einnig rekur verslunina Daría & Herrar í verslunarmiðstöðinni Fjörður í Hafnarfirði. Þar er hægt að skoða og versla allar vörur, og sækja pantanir af vefnum - yfirleitt tilbúnar innan tveggja klukkustunda.
Varan sannfærði okkur:
Comfyballs.is byrjaði eins og flest gott: einhver prófaði réttu nærbuxurnar. Ómar Ómarsson kynntist Comfyballs í heimsókn í Noregi og eftir fyrsta parið var ekki aftur snúið, hér var komin vara sem Íslendingar yrðu að kynnast.
Vörulínurnar okkar
Við bjóðum þrjár efnislínur fyrir karla:
Cotton (92% bómull, 8% Lycra®) fyrir hversdaginn,
Performance (84% polyester, 16% Lycra®) fyrir íþróttir og æfingar.
Comfycel® (47% combed cotton, 47% Lyocell/Tencel®, 6% Lycra®) - eigið efni Comfyballs sem er mýkra en bómull og umhverfisvænt. Fyrir konur er Comfy línan: saumlausar nærbuxur, hipster, strengir og toppar úr sömu gæðaefnum.
Það sem viðskiptavinir segja
Yfir 900 viðskiptavinir hafa skilið eftir umsögn á comfyballs.is og meðaleinkunnin er 4,9 stjörnur af 5. Við bjóðum 30 daga skilarétt, frí vöruskil með Dropp og persónulega þjónustu í verslun, emaili eða síma.
Hafðu samband
- Netfang: comfyballs@comfyballs.is
- Sími: 781 6645
- Verslun: Daría & Herrar, Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður (1. hæð)
- Opnunartími: virka daga 11-18, laugardaga 11-16
Daría ehf | Kt. 630997-2919 | VSK-nr. 56039